If it looks like a duck, smells like a duck and quacks like a duck then it´s not a dog!!
20.02.2005 20:26:49 / Rakel

Nýtt Blogg

ég er komin með nýtt blogg www.blog.central.is/lopapeysa :) Þessi síða var orðinn mjög hægvirk og var með bara vesen.. sýndi ekki færslur og sýndi svo margar og bleh... en hey.. bara breyta mér í linknum og vera virkir þátttakendur á lopapeysu blogginu

Orgel segir Bless og Lopapeysa segir Hæ :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2005 00:17:18 / Rakel

Kvöldið....

Kvöldið var gott. Ég náði í Völu og við tókum rúnt. Okkur langaði í bollu... Við fórum í Hlíðarkaup og horfðum lengi á bollurnar því það var erfitt að velja... Rjómabolla? Púnsbolla? eða vatnsdeigsbolla... Við ákváðum að fá okkur rjómabollu með alvöru súkkulaði að því að vatnsdeigsbollurnar voru með glassúr. Við vorum spenntar. Ákváðum að finna okkur góðan stað til að borða á. Skaffóplanið varið fyrir valinu en Vala er gráðug stúlka og smakkaði sína bollu á meðan að ég var að bakka fyrir utan Hlíðó... Allt í einu varð glaða, spennta Vala ekki glöð og spennt lengur... Við fengum vitlausar bollur!! þetta voru púnsbollur... Vala sem segir að ég sé löt nennti ekki að hlaupa inn og skipta svo ég hlaup inn og fékk nýja bollur... Ég tek það fram að þetta var klúður hjá Hlíðó því að bollurnar voru merktar vitlaust... En ég og Vala urðum aftur glaðar og brunuðum niðurá Skaffóplan. Þegar við vorum búnar að velja stað á Skaffóplaninu urðum við leiðar því við vorum með PÚNSbollur... Hvað er málið... Við nenntum þessu ekki lengur og urðum glaðar aftur... orðnar saddar af öllu þessu smakki, fórum heim og gáfum mömmu og pabba restina af púnsbollunum. Góð saga :) En kvöldið var nú ekki búið.. Hófst þá rúnturinn sem að var svona líka ógeð skemmtilegur... hehe.. Had to be there though.. en ég ætla samt að segja ykkur söguna.. Hún er einhvern veginn svona:

 

Vala ætlaði að hringja í Sigga vin sinn. Hann var á rúntinu og hún var ,,reið" aðþví að hann sá hana ekki þegar hún vinkaði. Vala hringdi en hann skellti á... Vala hringdði aftur og hann skellti enn á. Vala var orðin reið við Sigga. Vala fékk sms frá Sigga sem stóð í ,,hver er þetta eiginlega?" Vala varð rauð í framan af reiði því Siggi var ekki með númerið hennar og svaraði smsinu svona ,,Ertu móngólýti Siggi?" og reyndi að hringja enn einu sinni. Hana langaði víst voða mikið að tala við hann en samt aðalega skamma hann fyrir að vera ekki með númerið hennar. Siggi hélt áfram að skella á. Allt í einu fær Vala annað sms sem er einhvern veginn svona: ,,Ég veit ekki hver þú ert og í hvern þú ert að reyna hringja en viltu hætta hringja í þetta númer" Þá fór Vala að hlægja og gráta en samt af hlátri.. Þetta var ekki Siggi vinur hennar.. og eiginlega bara engin Siggi..!! Haha.. næstu 5 mín fóru í að hlægja, gráta að þessari vitleysu. Vala hringdi í Hrund sem lét Völu hafa númerið hjá Sigga vin. Vala hringdi loksins í Sigga vin sinn og sagði honum alla söguna... Siggi hló mikið. Vala hringdi líka í Óla og sagði honum söguna en Óli fattaði söguna strax í byrjun og fannst sagan ekki fyndin er allt í læ því mér, Völu og Sigga fannst hún drepfyndin. Þetta var sagan af Völu og rúnti kvöldsins. Vala er skemmtileg...sérstaklega þegar hún er svona einstaklega hress.

 

 



Hef þetta ekki lengra. Talaði við Hrund áðan, hún var pirruð og gat ekki sofnað að þvi að hana langaði svo í bollu og sagði að ég og Vala værum *bíp* því við tókum forskot á sæluna.. Ég sagði til að friða hana að ég færi með henni í bakaríið á morgun til að fá mér bollu hehe.

 

 



Orgel: með strengi í maganum eftir mikinn hlátur

Lag dagsins: Hjálmar - Borgin ... Mergjað lag!

Orð dagsins: Typpastríðari...eða hvað?


» 86 hafa sagt sína skoðun

31.01.2005 09:14:05 / Rakel

Vonbrigði...

Ég er stórlega móðguð og hef orðið fyrir miklum vonbrigðum... Sko hérna er maður... bloggar á NÆSTUM hverjum degi... kemur með ógurlega speki og svo eru allir bara... blabla.. engin commentar fínu spekina mína og ég held að ég gefist upp á því að berjast við að vera spekingsleg í hvert skipti sem ég blogga.. það er hreinlega of erfitt... En ég er ekkert hætt að blogga sko... ég mun blogga fram í rauðan dauðan.. þó að ég fái aldrei comment.. ég mun halda áfram því minn tími mun koma ... ;) (uu... alþingisferð) en já... Helgin var ágæt... barnaafmæli... 7 ára stelpur í singstar... jíbíí... leiðinlegt kvöld á barnum... en samt gott fimmtudagsfyllerí...

Ég er glöð því það er mánudagur...! ég er í fríi í dag og á morgun.. engin vinna... ég ætla að horfa á einhver oggillea mynd í dag og búa í rúminu... mmm.... hehe... en ætli maður neyðist ekki til að læra í íslensku... argg... samt Völuspá sem er skemmtileg... Vala Svala og Hrund Brund koma í dag... nótt  :lol: Ég er samt hætt.. er búin að jafna mig af vonbrigðunum... en til refsingar verður engin speki í dag... bara so sorry guys...

Orgel: dýrkar að vera í singstar með 7 ára stelpum....

Lag dagsins: Green day - Boulevard Of Broken Dreams


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.01.2005 12:25:39 / Rakel

Góðan daginn

Sæl öll sömul og sérstaklega Finnlandsfarar;) Þá er nú orðið svoldið langt síðan ég bloggað en ég hef verið svo upptekin við vinnu, skóla og líka það að sofa alveg ógeðslega vel... Þessi vika hefur verið alveg lang best hvað svefn varðar... Ég hef sofið alveg eins og steinn sem er bara gott...!! Ekkert vatn á borðinu og ekkert... og já slökkt á sjónvarpinu.. hehe.. Það er átak í gangi.. samt örugglega ekki allir sem skilja hvað ég er að babbla.. líklegast bara Vala eða eitthvað! En jæja.. Rakel skellti sér nú líklegast á körfuboltaleik.. æj já.. það var frítt... en ég skil ekki afhverju ég fattaði ekkikörfuboltaleiki fyrr... fullt af kr.. til að horfa á.. nee... segi svona... Eftir körfuboltaleik var stefnan tekin heim í litla sæta herbergið mitt hehe.. nokkrar stúlkukindur.. við borðuðum snakk og sungum... máluðum okkur, greiddum og drukkum bjór og vodka... Barinn var ágætur.. engin voða stemma fyrir dansi... en samt alveg gaman... Við stúlkurnar létum það ekki bögga okkur að við værum bara þrjár að dansa.. + Sigríður Inga hehe... Kvöldið endaði samt ekki vel en ég ætla nú ekki að fara tala um það..! núna er ég bara að bíða eftir Nágrönnum, get eiginlega ekki lúllað lengur...!

Finnlandsfarar: Líst ekki á það þetta liferni ykkar og treysti því að hún Vala passi að þið hin óþekku hagið ykkur vel.. hehe... En ég sakna ykkar óttalega... meira að segja vitleysingum Helga. Hrund mín reyndu að verða ekki veik og Vala reyndu að borða eitthvað og hætta að versla! Hafið það nú gott í kuldanum.. Ég sé mánudaginn í hyllingum.. kiss kiss og knús... já veriði líka góðar við Helga greyið.. hann er eini karlmaðurinn eða já fyrir utan Jón meistara.. hef samt eiginlega ekki áhyggjur af því að þið séuð vondar við hann.. nema kannski Hrund 8)

Speki dagsins: ,,Mig dreymdi eina nóttina að ég væri fiðrildi sem flaug um og var ánægður með það. Skyndilega vaknaði ég og var orðinn Chuang-tzu aftur. Hver er ég í raun og veru? Fiðrildi sem dreymir að það sé Chuang-tzu eða Chuang-tzu sem heldur að hann sé fiðrildi?" Hver erum við?? hvað er draumur og hvað ekki... Þetta er samt kannski ekki speki... meira svona pæling...

Orgel: illt í nefinu

Lag dagsins: nágrannalagið.. hehe...


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2005 17:31:01 / Rakel

róleg...

Ég er rosalega róleg... eins og einhver myndi segja... ég er slök... Þessi dagur er búin að vera eitthvað svo skrýtin.. ég er dofin... en ég tók til í herberginu mínu og á baðinu mínu.. reyndar ekki alveg ein en ég meina... annars hefði þetta tekið 4 tíma... því að ég er held ég sóði.. hehe... Í dag fór ég líka í bakaríið.. ég borðaði rúnstykki og drakk kókómjólk. Það var gott. Ég fór í búðina og verslaði burritos sem ég ætla að borða í kvöld.. ég hlakka til... Núna er ég að reyna að bæta skapið.. ég er ekkert í vondu skapi samt.. bara eitthvað skrýtnu... en já.. ég er að hlusta á tónlist... Eivör... sem ég hef eiginlega aldrei fílað.. fannst hún hálf skrýtin en síðan kom Kusa mér á óvart með því að gefa mér diskin með henni í jólagjöf...og eftir að hafa hlustað nokkru sinnum hefur mér lærst að Eivör er frábær.. þetta er góð söngkona og flott lög. Á disknum syngur hún á íslensku, ensku, sænsku og færeysku... hehe... og já... ef sænsku lögin eru ekki bara best...;)

 

 



Kannski er ég leið að því að nú eru Vala og co farin til Finnlands og ég er eitthvað einmana.. en ég verð það ekki lengi.. Svala er í Varmahlíð, ég var að tala við hana.. hún er að koma heim :D Við ætlum líka að öllum líkindum í Sjallann á laugardaginn næsta... Sálarball... jeijj..

Ég er að reyna koma lagi á svefninn hjá mér.. búin að sofa í 4 tíma síðustu 2 sólarhringa og ákvað að leggja mig ekki í dag til þess að laga þetta... kannski er það ástæðan fyrir sljóleika mínum... en ég held að ég sé hætt þessu bulli.. ég er ekki mjög frjó... Verð samt eiginlega að segja ykkur frá frabærum rúnti í gær og góðum félagsskap... Vala Hrönn, Anna Ragna, Stefán og Bragi og þakka ég þessum fríða flokki kvenna og karla fyrir góða skemmtun og já hehe góðar samræður 8)  

 

 



Orgel - fílar Eivör í botn

Lag dagsins: Eivör - Om jag vågar


» 112 hafa sagt sína skoðun

22.01.2005 15:52:55 / Rakel

Skoðanakönnun...

Það er semsagt komin skoðanakönnun hjá minni... það hefur nú ekki gerst lengi... en já svo að ég útskýri aðeins... ég segi alltaf.. "jæja.. nú fer ég í leikfimi..." eða eitthvað í þeim dúr og þá er ég alltaf harðlega gagnrýnd og ég heyri setningar eins og.. Rakel... viltu gjöru svo vel að segja íþróttir eða ég... ! og svo omg Rakel maður sagði leikfimi í barnaskóla! en málið er að mér líkar bara orðið leikfimi en svona fyrir kurteisisakir og svo að ég verði ekki að atlægi segi ég stundum íþróttir.. mér fannst sko bara spennandi að spyrja að þessu... Þessi spurning er alveg jafn mikilvæg og t.d. pylsa eða pulsa... muffins eða möffins og nú spyr ég leikfimi eða íþróttir? Gaman að þessu ... haha... en já... það voru bara góð viðbrögð við pælingunni minni... og reyni ég kannski að pæla eitthvað meira og oftar í framhaldinu.. en jahh.. maður veit aldrei...

Ég er glöð... þreytt en glöð.. ég og mamma ætlum að hafa videokvöld í kvöld.. Við ætlum að leigja spólu, 13 going on 30 by the way.. hehe og borða nammi.. Ég hlakka til... langt síðan ég og mútta höfum átta góða stund saman... nú er ég geght væmin en ég segi bara mér þykir bara óttalega  vænt hana mömmu mína...!

Með áframhaldandi gleði segi ég bara einsog vitur vinkona sagði eitt sinn... lífið er svo skemmtileg og þá dæsti ég eitthvað aðþví að ég var leið og þá sagði hún að ef við yrðum aldrei leið þá værum heldur aldrei almennilega glöð... það var eitthvað í þessum dúr allavega... hehe... en þetta var hún Vala litla sæta... en jáh... nú segi ég þetta gott í bili..

Þetta blogg var væmið... og kannski frekar leiðinlegt... en who cares... Life is great...

Orgel: til í mömmustund

Lag dagsins: Jet - nýja lagið... hehe.. veit ekki hvað það heitir.. rólegt og gott

Speki dagsins: Brostu framan í heiminn... og þá brosir hann tilbaka... eða eitthvað... (ekki mjög góð í spekingshlutanum)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2005 16:39:41 / Rakel

Hætt...

Nú er ég sko hætt þessu endalausa væli... Ég hef ákveðið að með réttu hugarfari get ég hætt að vera veik...!! en ég er öll að hressast og ætla bara í vinnuna á morgun hehe... En já.. svona til að Vala mín hafi ekki áhyggjur þá komst ég heil heim... og komst upp og niður stigann... hehe... skreið upp í rúm.. lúllaði og vaknaði sem ný manneskja... ;) Núna er ég að horfa á barnaefnið með systu litlu...;) Vala og Hrund eru að fara stinga mig af til Finnlands og ég er leið.. en ekkert væl... okey smá væl... Þær verða í burtu í viku... Æ vill bí só lónlí... hehe en samt ég þarf eiginlega ekki að væla því ef ég man rétt þá er hún Svala sæta að koma heim í vikufrí... jeijj... þá verður nú kannski spilað og kíkt á barinn aðþví að sko ég hef aldrei farið á barinn með Svölu... allavega ekki löglega sko...! Ég nenni ekki að skrifa um ammælið... einsog Vala sagði það er talað um það á annarri hverri bloggsíðu! en þetta var gaman og gott...

Ég var að spá í hvort að ég ætti að vera með svona einhverja pælingu?? eða pælingar? Ætli ég sé góð í því? kannski að ég reyni að feta í fótspor Smoochy... get það samt örugglega ekki... en hey... segið mér hvað ykkur dettur í hug þegar þið heyrið þessi orð? eða sko þú veist, hvernig mynduð þið túlka þau? ,,Í upphafi skyldi endinn skoða" Now tell me what you think.. skora samt á smoochy.. hehe...

Orgel: hætt að væla en samt ekki

Lag dagsins: tónlistarmaðurinn Mókó - öskurlagið :lol:


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.01.2005 11:01:53 / Rakel

Afbrot? ....

Já.. ég er enn veikur... lasin... ullabjakk!! ég er í afbrotafræði... próflaus áfangi og þessvegna verður maður að vera dúlegur að mæta annars væri ég heima... en ég er að fara heim.. Helgi sögukennari er líka veikur svo að ég er bara búin í skólanum í dag.. ég ætla heim að leggjast undir sæng... og vera veik áfram... og hringja í vinnuna og tilkynna áframhaldandi veikindi mín...!! en tíminn er búinn.. blogga meira seinna... bless....

Orgel: hef ekki tíma

Lag dagsins: er til lag sem segir... ég er veik og mér líður illa!!??


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2005 07:35:03 / Rakel

minns er sko lasin....

jæja... nú er ég orðin veik... reyndar búin að vera "veik"  mest alla vikuna en vinnan kallaði og var þörf á aukavöktum útaf því að það var svo mikið að gera í ræktinni... humm? en já ég er farin að vinna á morgnana frá klukkan hálf 7 til 8 og svo er það salsa salsa á sama tíma tvisvar í viku... eitthvað verður maður nú að hreyfa sig...! 8| en eins og ég sagði líður mér ógurlega illa... ég er bara með hausverk og get ekki andað...eiginlega hvorki með nebbanum né munninum.. eða þannig.. mesta furða að ég sé ekki dáin.. en ég er í vinnunni... lítið að gera... og svo ætla ég nú bara heim... engin skóla í dag og engin meiri vinna.. á nebbla að koma aftur klukkan 4!! já vikan sem leið var viðburðarík og skemmtileg... Rakel varð stór stelpa.. 18 ára... og svo hélt hún og Þuríður svaka afmælisveislu... meira af henni seinna.. ég er of veik núna... !! en hápunktur kvöldsins var nú eiginlega að heyra í Kusu frá Noregi.. hehe... Gaman að því... og hún hefur eflaust skemmt sér allra best.. ég og Rannveig á klóstinu og skvísan í símanum ... hehe.. en já... svona er lífið... ég held samt að það gæti verið að ég væri svona veik útaf því að ég er bara búin að djamma of mikið... fimmtudag... föstudag.. og laugardag...rúmið kallar...

Orgel: veik... veik..

lag dagsins: hún átti afmæli ....


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.01.2005 17:25:17 / Rakel

Ekki að fíla David Bowie...

Ég er stundum í vandræðum með hvað ég á að skrifa í titil... Nú sit ég hér með headphones að hlusta á lagapakkann hans Helga... Góður pakki... er samt ekki alveg að fíla David Bowie en restin er góð... held ég bara.. ekki búin að hlusta á allt samt.. en góð hugmynd hjá Helga og skora ég á hann að gera þetta að vikulegum atburði.. hehe... og já 80´s næst... takk fyrir takk!! Jæja... svo eru 9 dagar í afmælið... Fimmtudaginn 13 janúar förum ég og hin skvísan sem er að ná þessum góða aldri saman á barinn og dönsum villta dansa.. hehe.. þetta verður skrýtið...!! en já hvað er framundan.. Þréttánda ballið.. og Rakel er að hugsa um að keyra.. úff.. hehe.. það er búin að vera of mikil drykkja á þessum bæ... Ég er líka að spá í að spara mig fyrir 15 janúar... því þá ætlum við Þuríður að halda upp þennan merkisáfanga að verða 18 með dúndurpartýi... hehe... Þokkalega...!! en já.. skólinn er á morgun.. humm.. ég hlakka bara til held ég... Vala skvís fer á vistina og verður maður væntanlega fastagestur þar.. hehe...!! og það verður bara gaman að hitta fólkið aftur... maður kynntist svo anskoti mörgu góðu fólki í kringum Thriller... ;) En núna er ég að hlusta Creedence Clearwater - Down On The Corner sem er hluti af lagapakkanum hans Helga og verður það lag dagsins...

Orgel: Ekki alveg að meika það að snúa við sólarhringnum...

Lag dagsins: ...


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.01.2005 18:53:43 / Rakel

Nýtt ár gengið í garð....

Þá er nú komið nýtt ár... 2005... Ég held að það verði gott ár, ég finn það á mér :D

En áramótin voru góð, samt agalega vont veður en það var í key... ég fór á Atómstöðina á barnum... og þegar ég kom út... semsagt þegar ballið var búið var komið þetta fínasta veður en ég fór reyndar ekki út fyrr en klukkan var eitthvað um fimm, í alvöru það var svo mergjað stuð að ég tímdi ekki að fara... vildi sko ekki missa af einu lagi, einum dansi. Áður en að ég fór á ball var ég heima með fjölskyldunni + eitt stykki Vala... Vala greyið þurfti að koma hingað áður en að veðrið versnaði en hún er eiginlega hvort erðer orðin one of us þannig að við kipptum okkur lítið upp við það. Skaupið var aldrei þessu vant bara helvíti gott... ég gat alveg hlegið en síðan skáluðum við og fögnuðum nýu ári! Skvísurnar komu að lokum til mín og við tylltum okkur í stofuna hjá pabba gamla og sungum lög með Bonnie Tyler... Klukkan tvö hélt hersingin svo í bæinn en þá reyndar mínus pabbi hehe... og Vala því hún fór í Miðgarð...En nóg af því... Það sem hefur nú verið einkennandi við frí-ið þessi jól og áramót er spilamennska, leti, át, drykkja, dans...söngur... og ég gæti örugglega talið áfram....

Nú... er svo Kusan okkar flogin til Noregs aftur og þarf ég að byrja aftur á því að telja dagana í að gellan komi aftur en hún verð meðal vor þann 20 mars... en þá er nú líklegast páskafrí ;) Ég segi þetta bara gott í bili... Spilamennskan hjá okkur skvísum bíður...

Orgel: líður vel eftir gott frí

Lag dagsins: Bonnie Tyler – A total eclipse of the heart


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2004 06:21:42 / Rakel

Alltaf gott að djamma..

Jæja.. ég hef aldrei bloggað áður efti fyllerí en ég er bara ekki þreytt þannig að ég hugsaði bara... hey why not... en já... ball á Kaffi Krók og góður rúntur...Það er alveg mergjað.... Gaggó vest bergmálar í hausnum á mér... En já þetta var bara einsog ég sagði gott djamm... eins og alltaf voru aðrir meira fullir en aðrir og verð ég þar helst að nefna fröken Þuríði... hehe dettandi einsog ég veit ekki hvað... hehe... en já það var bara gaman og var maður aðeins að dansa og spjalla við fólk sem að maður hefur ekki dansað og spjallað við lengi... sem er bara gaman ;) En sko það er alveg spurning hvort að maður eigi að gera eins og Kristín og tala um karlmennina í lífi mínu... en hún bloggaði um þá síðast þegar hún var full .... en nei... þessir karlmenn eru nú eitthvað í færra lagi um þessar mundir... eða hvað sem maður segir...  en ahh... ég er að hugsa um að reyna að blunda aðeins... Hvernig lýst ykkur á það krúsímúsídúllurnar mínar? En Góða nótt, sofiði rótt í alla nótt og dreymi ykkur vel :)

Orgel: þreytt en glöð eftir að hafa djammað vel

Lag dagsins: Gaggó vest - VON.... ekki spurning... hehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2004 15:31:53 / Rakel

Aðfangadagur ;)

Gleðileg jól allir saman og hafið það gott í dag og á morgun!

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2004 22:03:18 / Rakel

Annað skiptið í dag...

 Já krakkar mínir... annað skiptið í dag sem ég er að blogga.... Í dag fór ég á lindina í síðasta skipið og hjálpaði til við að hreinsa út, ég var bara að koma heim og er að fara horfa á dómaran á skjá einum. Það er góður þáttur hehe.. eða það finnst mér... Svala var að segja við mig að ég léti sjónvarpið stjórna lífi mínu.. ætli það sé eitthvað til í því? hmmm... en já smá hugleiðing... ekki að hætti Fjólu en hugleiðing... eða kannski ekki hugleiðing... svona meira bara frá mér... bleh... sko Nylon...? ég hef aldrei meikað þessar gellur.. sá þær í Reykjavík um helgina að árita dótið sitt og þær eru bara pínulitlar... en já það var samt ekki það sem ég ætlaði að segja... það var sko ekki pointið... já... það er lag sem er í spilun núna.. heitir held ég ,,Síðasta sumar" með þeim by the way og mér þykir leitt að segja það en ég er að fíla það :frown:  Þegar það kemur í útvarpinu þá er ég bara vúhú... syng með alveg fullum hálsi... og ég skammast mín af því að ég fíla ekki Nylon... bara lagið ... æji damn... ég er hætt... í bili...

Orgel: spyr sig hvað hugleiðing er eiginlega?

Lag dagsins: það sama og áðan....;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2004 13:51:29 / Rakel

Jólin...

Haldiði að ég hafi ekki verið vöknuð fyrir 10 í morgun...? og mætt í Skaffó kl hálf 11 og ég fór labbandi... ! ég held að ég ætti að fá verðlaun eða eitthvað. En já fréttir? ég er búin að fá vinnu í Þreksport og byrja núna milli jóla og nýárs... haldiði að maður verði kroppur ;) Svo núna í morgun er ég búin að vera pakka inn jólagjöfum og dandalast í búðum með múttunni, það var bara ágætt. En já.... gærkveldið var gott.... bara chill á mér Völu og Hrund... við horfðum á síðasta þáttinn af 70 mín... og hlógum eins og vitleysingar síðan kíkkuðum við einn rúnt og tóku þá Helga Sæmund og Árna með okkur...:D en ég ákvað að taka mér smá pásu frá jólapökkunum en held að pásan sé á enda....

Orgel: er ekki alveg komin í þenna jólafíling

Lag dagsins: Kimono - Japanese policeman


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3